Résumé
Í fjarlægu landi búa tólf systkin, ellefu bræður og ein systir. Börnin eru konungborin og lifa lífi sínu eftir því, þar til þau verða fyrir því óláni að faðir þeirra kvongast á ný. Nýja drottningin er reglulegt galdraflagð. Dótturina sendir hún í burtu úr höllinni en á synina leggur hún þau álög að þeir breytist í svani á björtum degi og megi einungis öðlast sitt mennska form er sól hnígur til viðar. Þegar systirin, Elísa, er orðin fimmtán ára hittir hún bræður sína á ný og verður vísari um örlög þeirra. Hún sver þess dýran eið að rifta álögunum sama hvað það kosti. Henni vitjast lausn í draumi, en sú er ekki þrautalaus og fleiri steinar eiga eftir að verða í götu hennar. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.
Auteur
Caractéristiques
Éditeur : Saga Egmont International
Publication : 2 janvier 2020
Intérieur : Noir & blanc
Support(s) : Livre audio [MP3]
Contenu(s) : MP3
Protection(s) : Aucune (MP3)
Taille(s) : 39,4 Mo (MP3)
Langue(s) : Islandais
EAN13 Livre audio [MP3] : 9788726238303



