Résumé
    
    
      
                      
  Þegar frægi fiðluleikarinn, Zirka Zenowitz, deyr skyndilega í miðri sýningu veldur það unnendum hans mikilli sorg. Þeirra á meðal er Ethel Stoneway, einkadóttir voldugs kolakóngs, sem fiðluleikarinn hafði löngum horft hýrum augum til. Er dularfull kista með andstyggilegu innihaldi finnst á heimili Zenowitz er Basil fursti sannfærður um að blygðunarlaus morðingi sé að verki. Hér reynir á eldmóð og sannfæringarmátt furstans því það eru fleiri sem vilja að ráða gátuna og helst eftir eigin höfði. Ævintýrin um Basil fursta komu fyrst út á Íslandi árið 1939. Bækurnar vöktu ánægju hér á landi enda auðlesin og skemmtileg ævintýri. Basil fursti er víðkunnur sem konungur leynilögreglumanna. Honum er falið að leysa hin erfiðustu glæpamál víðsvegar um heiminn, enda þykir hann manna færastur til þeirra verka. Höfundur bókanna er óþekktur.
      
    
      
          
  
      
   
      
  
      
  
      
  
  
      
    
      Caractéristiques
    
    
      
                
    
      
                
    
      
          
      
    
      
          
      
    
      
          
      
    
      
                      
  
    Publication : 31 août 2022  
       
    
      
          
      
    
      
                
    
      
                      
  
    Support(s) : Livre audio [MP3]  
       
    
      
                
    
      
                      
  
    Protection(s) : Aucune (MP3)  
       
    
      
          
      
    
      
                      
  
    Taille(s) : 85,5 Mo (MP3)  
       
    
      
                
    
      
          
      
    
      
                      
    
      EAN13 Livre audio [MP3] : 9788728421208